Byrjum bara á því að koma því á hreint..
Já ég nota AI í mínu daglega starfi sem og mínum aukaverkefnum þarf fyrir utan.
Mig langar aðeins að tala um það.
Hvað er ég að nota?
Ég er með áskriftir hjá Anthropic og OpenAI. OpenAI er lítil áskrift til að geta keyrt lítinn botta hérna heima við sem aðstoðar við allt og ekkert, en aðal áskrifin mín og sú dýrari er hjá Anthropic. Einnig hef ég verið að nota Ollama heima við, sjá betur neðar í færslunni.
Í hvað nota ég gervigreind?
Ég nota áskriftirnar nánast einungis í tengslum við forritun á hugbúnaði og öryggisúttektir á hugbúnaði, þjónum og þjónustum sem ég annast. Eina sem ég nota gervigreind í fyrir utan það er í mínum eigin verkefnum sem ég er með hérna heima við, hvort sem er minnisbók, verkefnastjórinn minn eða annað.
Gervigreind heima?
Margir hafa áhyggjur af umhverfinu og ég geri það líka, þess vegna keypti ég mér lítið skjákort frá Intel (Intel Arc Pro B50) sem er með 16GB VRAM og getur keyrt 14B útgáfur af mörgum AI módelum sæmilega vel, þó mun hægar en þjónustur sem keyra í gagnaverum. Ég hef reynt að nota það sem "heimsku" gervigreindina mína til að gera einfaldari hluti, þar sem svona lítil gervigreind er ekki marktæk í að gera stóra hluti í einu. En að fara yfir tölvupóst, athuga hluti, safna gögnum og að vera almennnur boðhlaupari virkar vel fyrir það.
Með þessu næ ég að minnka notkun mína á ytri þjónustum, minnka kostnað og hugsa betur um náttúruna og umhverfið, allavega í mínum huga.
Ástæðan fyrir því að ég tók þetta skjákort en ekki eitthvað flott og fínt frá td. Nvidia, er það að þetta kort notar sáralítið rafmagn. Kortið er í þokkabót í tölvu sem varla notar neitt. Í heildina þegar þessi vél er í 100% nýtingu þá er hún og skjákortið að taka um 150-200W, skjákortið sjálft tekur aldrei meira en 70W þegar það er undir fullu álagi.
Ég er með tvö módel í gangi á þessari vél:
- qwen3:14b-36k: notað sem heili bakvið helling af litlum verkefnum, hlutum sem þarf að gera
- nomic-embed-text: brýtur niður texta fyrir vector minni geymt í Postgres gagnagrunni fyrir eitt kerfið mitt (sýnt fyrir neðan)
Bæði módelin virðast geta unnið saman á sama kortinu á sama tíma eins og er, en við sjáum til svona til lengdar hvað gerist.
Dæmi um hugbúnað sem ég hef gert
Fyrir vinnuna
Ég veit ekki hversu mikið ég get talað um verkefnin í vinnunni, sem eru orðin þó nokkuð mörg, en ég get kannski farið yfir það í grófum dráttum.
Tækjastjórn - Kerfi sem er um borð í skipum.
- Virkar sem tímastilltur eldveggur
- Getur slökkt/kveikt/tímastillt 4G samband um borð
- Birtir gröf yfir notkun 4G og Starlink tenginga um borð
- Tengir sig við kerfi í landi sem heitir Homebase þar sem útgerðar geta skoðað gögn frá hverju skipi
- Margt fleirra og enn meira á leiðinni.
Homebase - Kerfi í landi.

- Safnar upplýsingum frá Tækjastjórn kerfum í skipum
- Birtir gröf fyrir notkun nettenginga um borð
- Nokkrir aðrir hlutir og meira á leiðinni
Sjóvarp - Kerfi um borð í skipum
- Sjómenn geta hlustað að útvarp í góðum gæðum út á sjó óháð nettengingu
Mín eigin kerfi heima við
VitalTrak - heilsuvitund

- Kerfi sem heldur utan um göng í tengslum við heilsu og hreyfingu.
- Tekur við aflestri af Tanita body skannanum sem ég á
- Birtir gröf fyrir sögu mælinga
- Heldur mér við efnið þegar ég nota kerfið
arOS - minn second brain

- Nýjasta kerfið sem ég er að vinna að
- Birtir mér allt sem ég þarf að vita yfir daginn
- Fylgist með áskriftum sem ég borga
- Fylgist með heilsu þjóna utan heimilis
- Fylgist með innkomu áskrifta af mínum kerfum
Og hvað svo
Jú, þetta er annar heimur en var fyrir örfáum árum síðan. Ég tek fagnandi á móti gervigreind og þeim tólum sem þau bjóða mér, ég er ekkert endilega sammála öllum sem elska hana þó. Ég er ekki og verð seint einhver boðberi þess að allir eigi að nota gervigreind! Það er undir hverjum og einum komið, rétt eins og með trúna, það eru ekki allir eins og ekki allir vilja það sama. Sumir vilja það bara alls ekki. Og það er allt í góðu.
Þó er það þess virði að minnast á að stóru fyrirtækin í heiminum eru föst á því að þetta sé framtíðin og þeir reyna allt sem þeir geta til að koma gervigreind í allar lausnir, sama hvort það sé gott eða slæmt fyrir notandann.
Time will tell.