Ég er búinn að vera frekar duglegur að kynna mér nýja hluti þetta árið so far, ég hafði verið að nota Cursor AI editor fyrir áramót og líkað það ágætlega, en sá hugbúnaður er í raun VSCode með AI chatbot í sér sem nýtir sér hina og þessa AI agenta sem eru í boði frá td. OpenAI, Anthropic, Google, X ofl.
Það sem mér líkaði ekki við þann hugbúnað er það að út af því að það er flakkað á milli AI agenta/þjónusta, þá er útkoman aldrei eins. ChatGPT hugsar of mikið, Grok býr til hluti sem ekki eru til.. þetta var farið að plaga mig, ég var að eyða meiri tíma í að laga en ég eyddi í annað.
Þannig að ég ákvað að leyfa mér í einn mánuð, prufu ef að orði mætti komast, að fjárfesta í Pro áskrift að Claude Code. Og ég get svo svarið það að þetta er besti hlutur sem ég hef upplifað. Ekki bara er þetta by far besta AI model sem ég hef unnið með heldur er "planning mode" sem er í Opus 4.5 alger helvítis snilld!
Þetta þýðir að ég er núna kominn með nokkur vefkerfi, bæði persónuleg og í tengslum við dagvinnuna, sem eru production ready og virka æðislega!
En þetta er AI, er það ekki hættulegt?
Jú, það er alltaf viss áhætta að nota AI aðstoð, en þó sérstaklega ef þú kannt ekki að forrita. Ég er þó að nota framework sem ég þekki aðeins inn á og er skrifað í PHP, sem ég kann vel á. Þannig að ég fer yfir kóðann og samþykki ekki blint hvað sem er.
Hvað er ég að forrita?
Tækjastjórn
Í vinnunni er ég að gera hugbúnað sem heitir "Tækjastjórn", þetta er hugbúnaður sem keyrir á netþjóni frá okkur í skipum, í þessu kerfi er hægt að stýra aðgangi tækja og tölva við internetið, fylgjast með notkun Starlink, 4G og annara VSAT (gervihnatta sambönd) um borð. Ég er svo að fara að bæta við þetta að rjúfa 4G samband eftir hentisemi þar sem það er eitt sem plagar mörg skip, að vera í tæpu 4G sambandi þannig að tengingin haldist "virk" þó hún sé ónothæf.
Myndalagerinn
Persónulega er ég búinn að vera að gera allskonar dót, ég er til að mynda búinn að vera að þróa mitt eigið kerfi til að halda utan um allar ljósmyndirnar mínar. Í raun vef útgáfa af Lightroom Classic ef þú þekkir þann hugbúnað, nema ég er ekki með neinn editor í þessu hjá mér, bara library partinn. Mig var búið að vanta eitthvað svona í svo langan tíma til að geta farið yfir myndir, gefið myndum einkun, flokkað niður í viss verk, staðsetningar, stikkorð ofl ofl.
Ragnar
Skrítið nafn, en jú, Ragnar er aðstoðarmaður minn, virtually allavega. Ég er búinn að vera að hanna minn eigin aðstoðarmann sem getur annast hluti eins og prófanir á hugbúnaði sem ég er að skrifa, rannsaka hluti fyrir mig, fylgjast með hvað er vinsælt á samfélagsmiðlum ofl ofl. Ragnar er byggður upp með því markmiði að ég geti bætt við modules við hann eftir þörfum, þannig að hann getur allt og ekkert. Bara spurning um hvað ég vil gera!
Ég er líka að skoða að gera MacOS app sem tengist við Ragnar, sjáum til hvernig það fer seinna.
Oudy.app
Oudy er svo iOS app sem ég er að búa til, til að hlusta á AudioBookshelf þjóna. AudioBookshelf sjálft er með ágætis vefviðmót sem hægt er að setja sem "web app" í símanum, en þá virkar hellingur ekki, svo sem að play/pause með headphone'um ofl. Sem er eitthvað sem Sunna þolir ekki! Þannig að ég varð að laga það fyrir hana.
smallCRM
Já, það kerfi er það sem er búið að fá einna helst mesta mína athygli, en samt ekki. Ég er svo nálægt lokunum á því kerfi og næstum ready að byrja að selja aðgang að því, en það er smá svona "imposter syndrome" í gangi hjá mér og hræðslan við að falla er ansi mikil. En ég er að plana að fyrir lok febrúar verði kerfið orðið live og fyrsta holl fái aðgang að kerfinu. Ég er í þessum orðum að vinna í að tengja kerfið við Paddle til að geta rukkað fyrir aðgang að því.
Ramble..
Já, ég er kannski ekki alveg clear í kollinum, athyglin er út um allt og ég er að pæla í svo mörgu á sama tíma að þessi færsla er eflaust erfið að lesa. En, ég kannski finn lausn við því fljótlega og fer að róa mig niður í kollinum.