Blendnar tilfinningar

Svara færslu

Fyrst af öllu

Þetta er lagið sem um ræðir, sem er samstarf milli Electric Callboy og hljómsveitar sem flestir sem þekkja mig vita af, The Offspring.

Lagið er gott

En það er eitthvað við það að sjá hversu gamall Dexter, söngvari The Offspring, er orðinn. Ég heyrði fyrst í þeim þegar ég var í 10. bekk í Mosó, platan "Smash" kom út 1994 en ég held það hafi ekki verið fyrr en ári seinna sem ég heyrði hana fyrst í geislaspilaranum hjá Garðari vini mínum á þeim tíma. Sá drengur og Gunnar kynntu mig fyrir Metallica á sama tíma. En það er önnur færsla útaf fyrir sig.

The Offspring er einhvern vegin sú hljómsveit sem ég tengi við Mosfellsbæ og þau ár sem ég bjó þar.

Blendnar tilfinningar?

En já, það eru vissar tilfinningar með þetta lag þegar ég hlusta á það. Báðar hljómsveitir eru bönd sem ég hlusta daglega á nánast og það að sjá þær vinna saman að þessu lagi er epic.. EN! Þetta er svona móment sem kyndillinn færist milli handa, ein kynslóð fer frá til að leyfa næstu að halda áfram. Ég er að upplifa þetta svolítið svoleiðis.

Lagið er snilld, báðar hljómsveitir fá að njóta sín á sinn máta, innskotið fyrir loka atriði lagsins er snilld (skotið á Pretty Fly for a White Guy).

Svör

Engin svör ennþá. Vertu fyrstur til að svara!

Skrifa svar

Athugið: Svör verða að vera samþykkt áður en þau birtast.

Enter your comment text