Enn og aftur flash!

Svara færslu
Categories:

Ég HATA hvað það er notað mikið af Flash auglýsingum á fréttavefum, flestir ef ekki allir sem þekkja mig ættu að vita það. Nú áðan smellti ég á hlekk sem leiddi mig inn á vef Vísis og þetta helvíti tók á móti mér.. Nb. ég er með Flashblock sem og margir aðrir, en þegar ég kom inn á vefinn var eitt section yfir öllum vefnum sem ég varð að smella á til að komast að vefnum sjálfum, þegar ég smelli hinsvegar byrjar þetta helvíti að blikka og er þannig bara non-stop þar sem það er eflaust eitthvað annað sem á að gerast..

Hættið að skemma vefi með alltof stórum Flash auglýsingum!

Svör

Engin svör ennþá. Vertu fyrstur til að svara!

Skrifa svar

Athugið: Svör verða að vera samþykkt áður en þau birtast.

Enter your comment text